Mynd­band dagsins: „Það eru menn sem vinna við snjó­mokstur og svo er það hann Haf­þór“

Andrea Sigurðardóttir, verkefnisstjóri á samskiptasviði Marel og formaðu Hvatar, á myndband dagsins en hún birti myndband á jóladag af Hafþóri sem ákvað að henda sér í snjómokstur á lita beltagröfu fremur en að nota sköfu.

„Það eru menn sem vinna við snjó­mokstur, og svo er það hann Haf­þór. Hann fékk lánaða gröfu og er búinn að vera úti að moka síðan á há­degi,“ skrifar Andrea.

Guðmundur Egill segir að það sé vel gert hjá honum að taka málin í eigin hendur en þetta sé svo lítt þekkt aðferð.

„Vel gert að taka málin í sínar hendur. Litla belta­gröfu hef ég samt aldrei séð í snjó­mokstri áður, alla­vega ekki hér norðan heiða,“ skrifar Guðmundur.