Ferðaskrifstofur í Venesúela halda áfram að auglýsa Ísland sem draumaeyju fyrir flóttamenn. Ný auglýsing er komin í loftið en þar flóttamönnum lofað 462 þúsund krónur í lágmarkslaun ásamt sterku velferðar- og almannartryggingarkerfi.
Áhugasömum er einnig bent á að hægt sé að kaupa flug til Íslands fyrir 990 dollara sem er um 143 þúsund krónur.
Nýverið var greint frá sambærilegum auglýsingum í fjölmiðlum en þær hurfu jafnt óðum. Þegar þetta er skrifað er auglýsingin enn uppi og hafa tugþúsundir séð hana.
Yfir 3.900 hafa líkað við auglýsinguna og annað þúsund skrifað athugasemd.
Áhugasamir spyrja um alls kyns hluti í tengslum við Íslands eins og hvers konar vinnuafli við erum að leita af og hvort það sé vel tekið á móti fólki yfir fimmtugu.
Efnahagur Venesúela hefur verið vægast sagt í rústu síðastliðinn á en í nýjum útlendingalögum er sama fyrirkomulag þegar það kemur að efnahagsflóttamönnum og áður. Úrskurðarnefnd tekur mál þeirra til umfjöllunar.
Í fyrra voru Venesúelamenn um helmingar umsækjenda um vernd á Íslandi. Yfir 430 fengu vernd í fyrra, samkvæmt tölum frá október 2022. Alls komu um 600 Venesúelamenn til Íslands í fyrra og hafa þeir aldrei verið fleiri.