Körfuboltamaðurinn Brynjar Þór Björnsson birtir heldur betur áhugavert myndband í morgun þar sem hann átti leið framhjá Laugalækjarskóla en svo virðist vera að vel á annan tug foreldra hafi ákveðið að leggja ólöglega fyrir foreldrafund.
„Þrátt fyrir að stærstu bílastæði landsins eru 100 metra frá,“ skrifar Brynjar.
Sjón er sögu ríkari og gæti lögreglan haft vel upp úr því að eiga ferð þarna fram hjá.
Foreldrafundur í Laugalækjarskóla og stór hluti leggur ólöglega. Þrátt fyrir stærstu bílastæði landsins 100 metra frá. pic.twitter.com/SmWcYpKTlW
— Brynjar Bjornsson (@Brynjarthorb) September 21, 2022