Hemn A. Hussein, kúrdi sem býr á Íslandi, kom að svönum í sjálfheldu í Hafnarfirði í gær.
Svanurinn var búinn að festast við ísinn en Hussein segir að þetta sé frekar algengt yfir háveturinn. Hann lét til skara skríða og fór út á ísinn til að bjarga svaninum og tók myndband af björguninni til að vekja athygli á því að fólk ætti að hafa augun opin nú yfir háveturinn.
Fjölmargir hafa séð myndbandið og þakkað honum fyrir en hægt er að sjá björgunina hér að neðan.