Mynda­töku­maður RÚV varð fyrir líkams­á­rás við störf í Herjólfs­dal

Mynda­töku­maður Ríkis­út­varpsins varð fyrir líkams­á­rás í Herjólfs­dal á föstu­daginn þegar hann sinnti starfi sínu og var að taka frétta­manninn Hólm­fríði Dag­nýju Frið­jóns­dóttur í frétta­innslagi hennar.

Á föstu­daginn á Þjóð­há­tíð voru sjö vistaðir í fanga­geymslu, einn af fjórir vegna ölvunar­á­stands og þrír í tengslum við líkams­á­rás. Lög­reglan sagði þó enga á­rásin hafa verið al­var­lega.

Í sam­tali við Vísi segir mynda­töku­maðurinn að menn hefðu byrjað að trufla tökurnar fyrir aftan Hólm­fríði og því hafi hann sagði að það væru „ein­hverjir fá­vitar að trufla.“

Það fór ekki vel í mennina sem veittust síðan að mynda­töku­manninum.

Upp­taka af at­vikinu birtist í sjón­varps­fréttum stöðvar tvö í gær­kvöldi og má finna á tímanum 9:10 ef smellt er hér.