Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn, er í hörkuformi þessa dagana nú þegar skammt er til borgarstjórnarkosninga. Eyþór fagnar 57 ára afmæli sínu í dag og birti hann rándýra sjálfu í tilefni dagsins á Facebook-síðu sinni.
„Hvert ár er gjöf sem ég þakka fyrir. Hver dagur er verðmætur. Í dag telst ég árinu eldri. Þá er gott að halda upp á það og lyfta lóðum,“ sagði Eyþór sem hnyklaði stælta upphandleggsvöðvana á myndinni.
Kveðjum hefur rignt yfir Eyþór á Facebook og spurði borgarfulltrúinn Aron Leví Beck hvort hann hefði verið svona massaður í skipulagsráði áðan. „Ég var í peysu,“ svaraði Eyþór að bragði. Hann bætti svo við að næst væri ferðinni heitið á boost-barinn í Laugardal – væntanlega til að fá sér prótínsjeik.
Myndina af Eyþóri má sjá hér að neðan: