Það er ljóst að Íslendingar eru komnir í ferðahug ef marka má nýjan metsölulista Eymundsson yfir vinsælustu bækurnar. Þar trónir á toppnum ný útgáfa af Vegahandbókinni.
Vegahandbókin er klassísk enda verið ferðafélagi ófárra Íslendinga sem hossast hafa á malarvegum um óbyggðirnar í leit að nýjum ævintýrum undanfarna áratugi. Brátt eru liðin 50 ár frá því að bókin kom fyrst út en ekki alls fyrir löngu kom út ný útgáfa bókarinnar sem virðist njóta mikilla vinsælda.
Íslendingar ætla að ferðast innanlands í sumar enda ríkir enn talsverð óvissa um stöðuna á vinsælum ferðamannastöðum erlendis vegna COVID-19.
Meðfylgjandi er mynd af metsölulista Eymundsson: