Mynd dagsins: Vill varðveita strætóskýli við Njarðargötu – Margeir lést árið 2019

„Hér er strætóskýli við Njarðargötu sem þarf að varðveita og gæta,“ segir Geoffrey Þór Huntington-Williams, einn eigenda skemmtistaðarins Priksins í miðborg Reykjavíkur.

Geoffrey birti á Facebook-síðu sinni mynd af gömlu strætóskýli sem stendur við Njarðargötu en inni í sjálfu skýlinu er verk eftir myndlistarmanninn Margeir Dire sem lést langt fyrir aldur fram árið 2019.

Margeir, sem var á 34. aldursári þegar hann lést, var þekktur fyrir allskonar falleg verk, til dæmis vegglistaverk, teikningar og ýmsa hönnun. Margeir og Geoffrey voru góðir vinir og vill Geoffrey halda minningu vinar síns á lofti með því að varðveita skýlið og listsköpun Margeirs.

Margeir naut mikillar virðingar innan listageirans þrátt fyrir ungan aldur. Hann stundaði meðal annars nám í Finnlandi og í Barcelona en var búsettur í Berlín síðustu ár ævi sinnar.