Hver man ekki eftir ljósbláa tímaritinu Bleikt og blátt sem var gefið út frá 1989 til 2003?
Séu einhverjir aðdáendur blaðsins enn þarna úti gafst kjörið tækifæri á dögunum til að kaupa stórt safn af því. Í Facebook-hópnum Brask og Brall birti Gísli nokkur mynd af safninu sínu og skrifaði:
„Óaðfinnanlegt Bleikt og blátt-safn. ALGJÖRLEGA ÓKLÍSTRAÐ!!!!“
Ásamt myndinni og textanum birtist verðhugmynd, sem var 100.000 krónur. Í ummælakerfinu mátti sjá þónokkur tilboð, frá fimmtán þúsund krónum upp í 88 þúsund. Ekki er ljóst hvort búið sé að selja safnið, en ef ekki þá fer hver að verða síðastur að bjóða í það.
Í ummælakerfinu mátti jafnframt sjá marga tagga vini sína, og því virðist vera sem margir aðdáendur blaðsins séu enn til staðar.