Viktor Gísli Hallgrímsson stimplaði sig rækilega inn með stórfenglegri frammistöðu í markinu á EM í handbolta sem lauk um helgina. Viktor Gísli var valinn í All-Star lið mótsins og eru allir sammála um að hann sé ein skærasta stjarnan í íslenskum íþróttaheimi ef ekki öllum handboltaheiminum um þessar mundir.
Var því viðeigandi að frammistaða hans á mótinu væri gerð ódauðleg, Linda nokkur málari málaði mynd af kappanum og leitar nú að áhugasömum eiganda í Facebookhópnum Málverk og aðrir listmunir.
Verkið heitir: Stjarna er fædd

Viktor Gísli er sjálfur hæstánægður en Linda birti samskipti þeirra á Facebook, sagði hann:
„Aujj, þetta er geggjað!“