Mynd dagsins: „Víðir er farinn að þurfa að svara fyrir ansi margt“

Það hefur mikið mætt á Víði Reynissyni yfirlögregluþjóni undanfarna þrettán mánuði eða svo. Víðir hefur verið í eldlínunni í baráttunni gegn COVID-19 og mætt í hvert viðtalið á fætur öðru, svo ekki sé minnst á alla upplýsingafundina.

Kamilla Einarsdóttir rithöfundur birti skemmtilegar myndir á Twitter-síðu sinni þar sem sjá má ákveðinn rugling sem varð í Kastljósi RÚV í vikunni. Víðir ræddi þá við Jóhönnu Vigdísi Hjaltadóttur um nýju sóttvarnarreglurnar sem tóku gildi í gær en eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskotum virðist alls ótengdur texti hafa laumað sér inn í útsendinguna. Útkoman er nokkuð spaugileg eins og sjá má.

„Víðir er farinn að þurfa að svara fyrir ansi margt,“ sagði Kamilla í færslunni sem vakti talsverða athygli.