Mynd dagsins: Við erum Kol­finna, Nói og Baldur Ingi

„Það eru 10 ár síðan gott líf okkar varð betra og inni­halds­ríkara, Nói mætti á svæðið. Munum að fagna fjöl­breyti­leikanum, það er hann sem gerir lífið betra,“ segir Guð­mundur Ár­mann Péturs­son, at­hafna­maður og rekstrar­fræðingur og faðir Nóa Snæs, 10 ára drengs sem fæddur er með Downs-heil­kennið.

Í dag, 21. mars, er al­þjóð­legur dagur ein­stak­linga með Downs og því ber að sjálf­sögðu að fagna.

Mynd dagsins er af Nóa, Kol­finnu og Baldri Inga en um­rædd mynd birtist fyrst á vef Pressunnar árið 2015 í til­efni af al­þjóða­degi ein­stak­linga með Downs. Fé­lag á­huga­fólks um Downs-heil­kennið út­bjó þessa fal­legu mynd til að vekja at­hygli með já­kvæðum hætti á Downs-heil­kenninu.

Í til­efni þess að al­þjóð­legur dagur ein­stak­linga með Downs er í dag er myndin hér birt aftur. Með myndinni fylgdu mikil­væg skila­boð frá Kol­finnu, Nóa og Baldri Inga:

Við erum Kol­finna, Nói og Baldur Ingi. Við erum með Downs heil­kenni. Við erum ekki Downs heil­kenni. Við erum Kol­finna, Nói og Baldur Ingi.