Mynd dagsins: „Við ætluðum að gifta okkur í apríl en svo missti Pútín vitið“

Yar­oslava Fedorash greinir frá því á Twitter að hún eigin­maðurinn sinn ætluðu að gifta sig apríl en þar sem Pútin missti vitið 24. febrúar og réðst inn í Úkraínu var það ekki hægt.

Brúð­guminn gekk í herinn og hún varð sjálf­boða­liði. „Það var því ekki eftir neinu að bíða. Í stríði hefur að­eins daginn í dag,“ skrifar hún og deilir mynd af sér.

Hring­braut óskar ný­bökuðu hjónunum inni­lega til hamingju.