Miðað við atburði síðustu tólf mánuði, veirufaraldur, jarðskjálfta og yfirvofandi eldgos, ætti ekkert að koma landsmönnum á óvart lengur.
Nú gengur um netið býsna skemmtileg mynd sem sýnir hugsanlega sviðsmynd árið 2022. Á myndinni má sjá Boga Ágústsson sjónvarpsmann ræða við Víði Reynisson, yfirlögregluþjón í sjónvarpssetti RÚV í mars á næsta ári.
Ekki þarf að hafa mörg orð um myndina sem má sjá hér að neðan. Hún er býsna skemmtileg en rætist nú vonandi ekki.