Mynd dagsins að þessu sinni sýnir fjölmiðlamanninn Sölva Tryggvason í setti hlaðvarpsþáttar síns. Sölvi hefur slegið í gegn með þætti sína þar sem hann hefur tekið hvern Íslendinginn á fætur öðrum í viðtal.
Síðan fyrsti þátturinn fór í loftið þann 11. júní í fyrra hafa hvorki fleiri né færri en 93 mætt í settið til hans. Þykir Sölvi býsna afkastamikill og hafa mörg viðtölin vakið verðskuldaða athygli.
Oddur Bauer, hönnuður og trommuleikari, birti býsna skemmtilega mynd af Sölva á Twitter. Myndin skýrir sig nú að mestu sjálf og það er kannski óþarfi að hafa mörg orð um hana. Óhætt er að segja að myndin hafi slegið í gegn og hafa hátt í 1.200 manns sett „læk“ við hana þegar þetta er skrifað.
Var bara tímaspurnsmál pic.twitter.com/58KKbh7Qqt
— Oddur Bauer (@oddurbauer) March 23, 2021