Mynd dagsins: Vera þarf að koma með bílinn í skoðun 31. febrúar

Fjölmiðlamaðurinn Illugi Jökulsson birti athyglisverða mynd á Facebook-síðu sinni í gær. Eins og mörgum er kunnugt er Illugi faðir fjölmiðlakonunnar hæfileikaríku Veru Illugadóttur sem heldur úti einum vinsælasta útvarpsþætti landsins, Í ljósi sögunnar.

„Vera dóttir mín fór með bílinn sinn í skoðun og var sagt að eitthvað smotterí væri að og hún þyrfti að koma aftur þegar hún væri búin að láta laga það. Miðað við HVENÆR hún á koma aftur sýnist mér þó að hún þurfi ekki að hafa miklar áhyggjur,“ segir Illugi en eins og glöggir lesendur sjá á myndinni hér að neðan er síðasti dagur endurkomu 31. febrúar.

Óvíst er með öllu hvenær Vera á að koma með bílinn en á þessu ári eru aðeins 28 dagar í febrúarmánuði. Mest geta þeir verið 29 á hlaupári, en næsta hlaupár er ekki fyrr en árið 2024.

Færsla Illuga vakti kátínu margra og birtir einn skemmtilega mynd af miða í glugga pizzastaðar hér á Íslandi. Á miðanum stóð: „Lokað laugardaginn 31. júlí og sunnudaginn 32. júlí. Opið verður á mánudaginn frá 12 – 21.30.“