Það ráku margir upp stór augu þegar Vegagerðin, virðuleg stofnun sem birtir upplýsingar um ástand vega, var skyndilega að deila mynd af tónleikum og segjast stolt af syni sínum.
Skjáskot af þessu rataði á Twitter þar sem það hefur vakið mikla athygli:
hahahahaha úps pic.twitter.com/QmZdezbD5v
— Birgitta (@biggasveins) March 14, 2022
matti vegagerðarson
— [email protected] (@salkasnaebra) March 14, 2022
Menn voru þó fljótir að átta sig á hvað var á seyði. Matti sem um ræðir er nefnilega sonur G. Péturs Matthíassonar, upplýsingafulltrúa Vegagerðarinnar, og það var hann, en ekki Vegagerðin, sem er ótrúlega stoltur af syni sínum.
Afhverju heldurðu það? pic.twitter.com/fCBACnp0sG
— Stefán Hrafn Hagalín (@StefanHagalin) March 15, 2022