Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, og Hollywood-stjarnan Tom Cruise hittust á dögunum ef marka má ljósmynd sem eiginkona Ólafs, Dorrit Moussaieff, birti á Instagram.
Á myndinni sjást Ólafur og Cruise taka utan um hvorn annan og virðast eiga í góðu spjalli.
„Um hvað eru þessir tveir leikarar eginlega að spjalla um?“ spyr Dorrit í færslu sinni og gefur ekki upp nein svör.
Fréttablaðið/Skjáskot