Mynd dagsins: Tvífari Diljár - „Báðar að gera frá­bæra hluti“

Diljá Péturs­dóttir sem vann söngva­keppnina á laugar­daginn með lagið Power á sér tví­fara. Jóhannes Haukur Jóhannes­son leikari bendir á þetta á twitter í dag.

„Ég var í dag gamall þegar ég komst að því að þetta er bara alls ekki sama manneskjan. Báðar að gera frá­bæra hluti. Kveðja afi,“ skrifar Jóhannes og birtir mynd af Diljá og Ey­gló Hil­mars­dóttur leik­konu.

Ey­gló er leik­kona og hand­rits­höfundur sem hefur verið að gera það gott í sket­sa­þáttunum Kanarí á RÚV.

Sjá les­endur líkindin?