Mynd dagsins: Tommi á Búllunni fékk sér nýtt tattú – Inga Sæ­land yfir sig á­nægð

Tómas A. Tómas­son, veitinga­maður sem oft er kenndur við Búlluna, skartar nú nýju og glæsi­legu húð­flúri á vinstri hand­leggnum.

Eins og Tómas, eða Tommi eins og hann er jafnan kallaður, greindi frá í septem­ber síðast­liðnum er hann á leið í fram­boð fyrir Flokk fólksins. Nýja húð­flúrið hans er til marks um hollustu hans við flokkinn, en um er að ræða splunku­nýtt merki Flokks fólksins sem frum­sýnt var í desember.

„Hann er svo sannar­lega grjót­harður og mjög sáttur með nýja merkið okkar,“ segir Inga Sæ­land í stuttu spjalli við Hring­braut. Mynd af hand­leggnum á Tomma birtist á Face­book-síðu Flokks fólksins í gær­kvöldi.

Tommi stefnir á að komast á þing en eins og kunnugt er fara kosningar fram í septem­ber næst­komandi. Tommi hefur látið sig mál­efni ör­yrkja, eldri borgara og ein­stæðra for­eldra varða og lýsti hann því í pistli á vef Ei­ríks Jóns­sonar í fyrra­haust að eitt af stefnu­málum hans væri að út­rýma fá­tækt.

Nýja logoið okkar er glæsilegt á Tomma. Hann er örugglega einn af okkur. Áfram Flokkur fólksins!

Posted by Flokkur fólksins on Miðvikudagur, 20. janúar 2021