Stjörnulæknirinn Tómas Guðbjartsson birtir afar athyglisverða mynd á Facebook-síðu sinni í gærkvöldi. Þar birtir hann mynd frá 1925 af ungum læknanemum að kryfja lík í kjallara Alþingishússins!
Gefum Tómasi orðið: „Þessi ótrúlega mynd sýnir læknanema kryfja lík í kjallara Alþingishússins árið 1925, en ekki var pláss fyrir þá annars staðar. Tveir reykja en reykingar bældu formalínstækjuna. Spurning hvort þessi kjallari sé ennþá í boði - enda við í sífelldu húsnæðishallæri á LSH? Um leið myndu boðleiðir milli Alþingis og spítalans styttast.“
Tómas hefur farið mikinn í umræðunni um Landspítalann að undanförnu og kvartað sáran undan aðstöðuleysinu á spítalanum.