Mynd dagsins að þessu sinni birtist á Twitter í morgun þar sem hún vakti töluverða athygli. Um er að ræða skjáskot úr hinum sívinsæla þætti Gulli byggir, en þátturinn hóf nýlega göngu sína á ný á Stöð 2.
Í þáttunum fylgist Gunnlaugur Helgason, Gulli eins og hann er alltaf kallaður, með hinum ýmsu framkvæmdum sem húseigendur ráðast í. Stundum er um miklar breytingar að ræða og stundum minni, eins og gengur og gerist. Meðfylgjandi skjáskot vakti hins vegar mikla athygli eins og bent var á á Twitter:
„Ótrúlega mikil breyting. Alveg ótrúlegt hvað það getur gert mikið fyrir íbúð að fjarlægja grillið úr stofunni.“
Ótrúlega mikil breyting. Alveg ótrúlegt hvað það getur gert mikið fyrir íbúð að fjarlægja grillið úr stofunni. pic.twitter.com/QhrXFoqc4M
— Árni Torfason (@arnitorfa) August 31, 2021