Hallgrímur Helgason rithöfundur birti skemmtilega mynd á Facebook-síðu sinni í gær. Því verður ekki mótmælt að Reykjavíkurborg hafi skartað sínu fegursta í blíðviðrinu í gær og sá Hallgrímur ástæðu til að hafa orð á því sérstaklega.
„Eyjarskeggjar að norðan brugðu sér í Miðbæinn og urðu fyrir þessu líka menningarsjokki. Þvílíka borgin sem við eigum. Mokka komið út á götu, bjórgarður á Austurvelli og stórborgarvæb í lofti,“ segir Hallgrímur í færslu sinni.
Eins og þeir sem fylgjast með þjóðfélagsumræðunni vita eru mjög skiptar skoðanir um Reykjavíkurborg og þá sérstaklega miðborgina. Núverandi meirihluti hefur reynt markvisst að bæta aðgengi gangandi og hjólandi vegfarenda á kostnað vélknúinna ökutækja og sitt sýnist hverjum um það. Bílastæðum hefur fækkað og götum breytt í göngugötur. Í góðviðri eins og var í gær er auðvelt að skilja ástæður þessara breytinga.
Hallgrímur endar færslu sína á því að spyrja hvort okkur hafi ekki dreymt um svona borg í gamla daga. Hann kom víða við á rölti sínu um borgina, meðal annars á Óðinstorgi og fékk sér svo ís á Gaeta Gelato við Ingólfstorg – sem hann segir vera þann besta hér á landi.
Margir taka undir með Hallgrími um fegurð borgarinnar. Enginn er þó væntanlega meira sammála en Dagur B. Eggertsson borgarstjóri sem þakkaði Hallgrímur fyrir hlý orð. „Gaman að lesa! Velkominn heim!,“ sagði borgarstjóri.