Mynd dagsins: Þú sérð það þegar þú sérð það

Auglýsing Húsasmiðjunnar á snjallperum hefur vakið mikla athygli og jafnvel kátínu glöggra lesenda. Sjáðu myndina í heild neðst.

Húsasmiðjan birti spánýjan bækling upp á tilboð í september. Þar er allskonar fólk að gera allskonar dót fyrir heimilið.

Þar á meðal er þetta skemmtilega par sem má sjá hér að neðan. Ákveðið atriði á myndinni hefur vakið mikla athygli og fólk spyr sig hvort einn maður hafi verið svona ánægður í auglýsingu.

Ef þú sérð það þá sérðu það en ef þú sérð það ekki þá sérðu það ekki.

Hvað er það sem sumir sjá en aðrir ekki?