Mynd dagsins: „Þórólfur og Víðir að leika löggu og bófa“

Í dag fór fram 93. upplýsingafundurinn vegna COVID-19 faraldursins en Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra birti nokkrar myndir á Facebook síðu sinni sem voru teknar af þríeykinu, Ölmu, Þórólfi og Víði, fyrir fundinn.

Ein myndin vakti athygli Twitter notandans Grétars Þórs en á myndinni sem um ræðir sjást Þórólfur og Víðir ræða um stöðuna.

„Falleg stund milli stríða, Þórólfur og Víðir að leika löggu og bófa. Maður getur næstum heyrt Víði öskra „Upp með hendur!“ þegar maður horfir á myndina,“ skrifar Grétar við myndina á Twitter.