Mynd dagsins: Þórólfur í 41. bylgju faraldursins

Mynd dagsins að þessu sinni á ágætlega við í dag, jafnvel þó hún hafi birst fyrst í nóvember í fyrra. Myndin er af tvífara Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis.

Myndin gekk manna á milli á Facebook í byrjun nóvember í fyrra og var hún sögð sýna Þórólf í 41. bylgju faraldursins. Það áttu kannski ekki margir von á því um þetta leyti í fyrra að ári síðar ætti metfjöldi smita eftir að greinast en það er engu að síður staðreynd.

Þórólfur er enn í brúnni sem sóttvarnalæknir nú þegar tæp tvö ár eru frá því að fyrstu smitin greindust og miðað við gang mála gæti enn verið langt í land að við getum um frjálst höfuð strokið.

Til að taka af öll tvímæli heitir maðurinn á myndinni hér að neðan Justin Johnson og er bandarískur lögmaður. Hann hafði verið í eldlínunni sem verjandi í morðmáli í fyrra og vakti athygli netverja á Íslandi fyrir líkindi við Þórólf – þó Þórólfur sé vissulega með aðeins hófstilltari hárgreiðslu.