Mynd dagsins að þessu sinni er nokkuð skemmtileg og sýnir tvífara Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis.
Nokkuð hefur verið hlegið að myndinni á Facebook og gengur manna á milli að hún sýni Þórólf í 41. bylgju kórónuveirufaraldursins. „Ekki búinn að fara í klippingu í 4 ár og búinn að gefa út heila plötu með sóttvarnarlögum,“ segir í færslunni.
Það er vonandi að kórónuveirufaraldurinn verði á bak og burt á næstunni og þriðja bylgjan sem nú gengur yfir verði sú síðasta. Á tímum sem þessum er þó nauðsynlegt að halda í gleðina og leyfa sér að brosa öðru hvoru.
Tvífari Þórólfs er bandaríski lögmaðurinn Justin Johnson sem hefur verið í eldlínunni vestan hafs sem verjandi í morðmáli.
Myndina má sjá hér að neðan: