Þórhildur Sunna Ævarsdóttir, þingmaður Pírata sver af sér sóttvarnarbrot á Pírataspjallinu í kvöld. Þar birtir hún mynd af sér með Loga Einarssyni, formanni Samfylkingarinnar en svo virðist vera sem myndin hafi verið í dreifingu á samfélagsmiðlum miðað við orð Þórhildar.
„Vegna þess að tröllin eru komin á kreik á samfélagsmiðlum og hér á spjallinu og vilja gera okkur Loga samsek með partýstandi Bjarna Ben vil ég benda á að þessi mynd er tekin sumarið 2019. Semsagt áður en Covid-19 var til. Það vita tröllin eflaust sem dreifa þessu gagngert til þess að ráðast að trúverðugleika okkar,“ skrifar þingkonan.
Þá lætur Alexandra Briem, borgarfulltrúi flokksins einnig orð í belg vegna málsins.
„Lágt er lagst hjá sumum...Ég trúi ekki öðru en að þeir sem dreifa þessu viti vel hvenær myndin er tekin. En viss manngerð kærir sig kollótta um staðreyndir eða heiðarleika. Hjá þeim snýst þetta bara um að vinna, að koma höggi á andstæðinginn sama hvað.“