Mynd dagsins: Þjófur gripinn glóðvolgur í Vesturbænum í gær

Mynd dagsins að þessu sinni er býsna skemmtileg en hún birtist í Facebook-hópnum Vesturbærinn í gær þar sem hún vakti talsverða lukku.

Segja má að um sé að ræða einskonar myndaröð af þjófi einum sem gripinn var glóðvolgur með ránsfenginn á sér um hábjartan dag í gær. Ekki var um neinn venjulegan þjóf að ræða heldur var þetta bröndóttur og fallegur köttur sem reyndist vera sökudólgurinn.

Það var rithöfundurinn Alda Sigmundsdóttir sem birti myndirnar. Í færslu sinni sagði hún:

BUSTED!

Rakst á þennan óprúttna aðila rétt áðan þar sem hann var upptekinn við að koma ránsfengi undan. Skaust inn í runna efst á Kaplaskjólsvegi með þýfið. Ef einhver saknar flip-flop skós, svarts með skrauti á bandinu, mæli ég með að kíkja inn í runnann. Hver veit nema annar ólögmætur varningur leynist á sömu slóðum.