Það borgar sig að fara að öllu með gát þegar gosstöðvarnar í Meradölum eru heimsóttar. Borið hefur á því að ferðamenn hafi jafnvel stigið út á nýrunnið hraunið og þarf vart að fjölyrða um hvað það getur verið hættulegt.
Gunnar Smári Egilsson, fyrrverandi fjölmiðlamaður og stofnandi Sósíalistaflokksins, birti áhugaverða færslu á Facebook-síðu sinni þar sem hann gerði þetta meðal annars að umtalsefni.
„Glóandi hraun er víst 1250°C heitt. Til samanburðar eru lík brennd við um 900°C. Það ætti að gefa mynd af þeim sem stígur ofan í glóandi hraun. Þegar lík er brennt er það vanalega haft í einn og hálfan tíma í ofninum. Aukinn hiti ætti að stytta tímann. Myndin er af ösku af líkama sem brenndur var í ofni. Þetta yrði eftir ofan á hrauninu af þeim sem stígur út á það, í fullkomnu logni. Flesta daga myndi askan fjúka burt.“