Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, á afmæli í dag en hann er 53 ára gamall. Af því tilefni færði Anna Birna Jensdóttir, stjórnarmaður hjá Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu, honum köku.
Í kortinu stóð:
Kæri Víðir
Íbúar og starfsfólk hjúkrunarheimila sendir þér hugheilar hamingjuóskir í tilefni dagsins 😊
Fyrir hönd Samtaka fyrirtækja í velferðarþjónustu
Pétur Magnússon, formaður stjórnar
Gangi þér allt í haginn
Víðir komst við þegar hann tók við kökunni og sagði: „Ég fæ nú bara tár í augun“
Í lok fundarins skoraði Víðir á fólk að gera gagn fyrir samfélagið og taka þátt í stóra plokkdeginum á laugardaginn en muna um leið tveggja metra regluna og vera um leið ekki í of stórum hópum.
Í lok fundar sagði Víðir:
„Svo langar mig bara að þakka fyrir mig.“
Að því mæltu sendi hann íslensku þjóðinni fingurkoss.