Lögreglan á Suðurnesjum birti mynd dagsins á Facebook-síðu sinni í morgun en við myndina minnir lögregla ökumenn á að sýna tillitsemi, til dæmis gagnvart umhverfinu.
Áminning lögreglu kemur ekki til af góðu því meðfylgjandi er mynd sem sýnir djúp hjólför á hringtorgi í umdæmi lögreglunnar. Svo virðist sem ökumaður óþekktrar bifreiðar hafi hreinlega gert sér að leik að aka yfir hringtorgið með þeim afleiðingum að djúp og ljót hjólför komu í grasið. Eins og ökumenn hér á landi hafa eflaust tekið eftir er þetta langt því frá fyrsta dæmið af þessu tagi.
„Okkur þykir þetta ekki skemmtilegt. Þetta hefur gerst nokkuð oft á þessu tiltekna hringtorgi við Þjóðbraut. Virðum lög og reglur. Vöndum okkur við aksturinn og sýnum tillitsemi. Það er hagur okkar allra að halda umhverfi okkar í lagi,“ segir lögreglan í færslu sinni.
Okkur þykir þetta ekki skemmtilegt. Þetta hefur gerst nokkuð oft á þessu tiltekna hringtorgi við Þjóðbraut. Virðum lög...
Posted by Lögreglustjórinn á Suðurnesjum on Miðvikudagur, 24. júní 2020