Ásdís Rán Gunnarsdóttir fyrirsæta birti athyglisverða mynd á Facebook-síðu sinni í gær. Ásdís Rán hefur marga fjöruna sopið í fyrirsætubransanum og hún virðist engu hafa gleymt í þeim efnum.
Skilaboðin sem fylgja myndinni eru einnig skemmtileg en í þeim segir hún: „This is what happens if your a Soccer wife for too long“.
Vísar Ásdís í stælta fótleggina sem gjarnan fylgja knattspyrnumönnum og þá staðreynd að hún var gift einum slíkum, Garðari Gunnlaugssyni, í sex ár. Þau skildu árið 2012 eftir að hafa verið saman í níu ár.
Myndin af Ásdísi hefur vakið talsverða kátínu meðal fylgjenda hennar og er færsla hennar með hátt í þúsund læk þegar þetta er skrifað.
Ekki alls fyrir löngu var greint frá því að Ásdís væri komin með kærasta en sá heppni heitir Gísli Elmarsson og mun vera búsettur í Svíþjóð.