Mynd dagsins: „Þetta gerir mig brjálaða“

Mynd dagsins er tekin af Kristínu Soffíu Jónsdóttur, borgarfulltrúa. Hún birti myndina í Facebook hópi íbúa í Laugarneshverfi.

„Þetta gerir mig brjálaða. Að skilja eftir rusl við gámana er ALDREI í lagi,“ skrifar Kristín Soffía.

„Það gerir meiri skaða en að hætta að endurvinna. Á morgun er í gildi veðurviðvörun og þetta mun fjúka um hverfið.“

Að síðustu skrifar Kristín: HÆTTIÐ🤯AÐ🤯SKILJA🤯EFTIR🤯RUSL