Mynd dagsins: Þetta fengu VIP-gestir á leik Íslands og Belgíu

Leik Íslands og Belgíu á EM kvenna lauk rétt í þessu með 1-1 jafntefli.

Leikurinn fór fram á akedemíuvelli Manchester City, og eins og oft tíðkast á stórum fótboltamótum er sérstök VIP-stúka í boði fyrir þá sem kaupa meira en bara venjulegan miða.

Hringbraut hefur undir höndum matseðilinn úr VIP-stúkunni fyrir leik Íslands og Belgíu, en á honum má sjá ýmsilegt spennandi sem er á boðstólnum.

Lax, lambakjöt, kjúklingur og ýmsilegt fleira má sjá á matseðlinum sem er hér fyrir neðan.

Hér er matseðillinn.