Mynd dagsins: „Þetta er hann, þetta er verst lagði bíllinn“

„Þetta er hann, þetta er verst lagði bíllinn,“ segir Una Guð­laug Sveins­dóttir í færslu sem hún birtir á Twitter.

Á myndinni má sjá lítinn sendi­ferða­bíl sem lagt hefur þvert yfir gang­stétt, þannig að Una Guð­laug kemst ekki fram hjá bílnum með barna­vagninn sinn án þess að fara út á götu.

Una Guð­laug tekur fram í færslunni að bíllinn sé lagður fyrir framan autt bíla­stæði, svo hann hefði létti­lega komist lengra inn í stæðið.

Glöggur Twitter notandi svara færslunni og bendir á að bílnum sé lagt rétt hjá Blindra­fé­laginu. „Ef þetta er hús Blindra­fé­lagsins þarna í vinstra horninu, er þetta með því sóða­legasta,“ segir í svarinu.

Sjá má myndina hér að neðan: