Það hefur ekki farið framhjá neinum að matvöruverð hefur hækkað umtalsvert á Íslandi undanfarin misseri. Það sama hefur vissulega gerst annars staðar en innrás Rússa í Úkraínu er meðal annars kennt um.
Þó að matarkarfan hafi hækkað víða er hún að líkindum enn talsvert ódýrari í öðrum löndum en Íslandi, Spáni til dæmis. Áhugaverð mynd birtist inni í hópnum Vertu á verði – eftirlit með verðlagi af matarkörfu íslenskrar fjölskyldu á Spáni. Færslan er svona:
„Í ljósi umræðunnar um verðlag á íslenskri matarkörfunni. Í dag var verslað vel inn á Spáni fyrir 9 manna fjölskyldu og var ekkert til sparað. Í matarkörfunni var m.a. 24 stk bjór - 4 rauðvín - 2 hvítvin - 2,5 kg nautalund - kjötvörur - mjólkurvörur - grænmeti - ávextir - bleyjur - gos - snakk og nammi og matur í 5 máltíðir fyrir 9 manns. Samtals um 50 þ ísl kr.“
Óvíst er hvað þessi tiltekna matarkarfa myndi kosta hér á landi. Bara bjórinn myndi sennilega kosta hátt í 10 þúsund krónur í verslun Vínbúðarinnar og fjórar rauðvínsflöskur í ódýrari kantinum annað eins.