Göngu-og hjólabrúin í Elliðarárdal er orðin illa leikin eftir margra ára skeið. Hrönn Jónsdóttir, einn netverja í Facebook hópnum Reiðhjólabændur, er nóg boðið.
„Þessi brú er mesti farsi sem ég hef kynnst,“ skrifar Hrönn. „Enginn vill gera við hana svo vel megi vera, ekki má rífa hana og ekki virðist möguleiki að reisa nothæfa brú þarna við hliðin á,“ skrifar Hrönn.
„Alveg sama hversu mörg erindi eru send inn að þá gerist ekkert. Hverju ætli það sé verið bíða eftir?“