Mynd dagsins á íbúi í Reykjanesbæ sem birtir ansi skemmtilega mynd á Facebook hópi sveitarfélagsins, sem sjá má hér að neðan.
Íbúar á Reykjanesi hafa líklega fundið hvað mest fyrir skjálftavirkninni á nesinu síðustu daga. Grindvíkingar hafa svo gott sem nötrað í nokkra daga samfleytt.
Á myndinni má sjá Hollywood leikarann Robert Downey Jr. ranghvolfa í sér augunum yfir Reykvíkingum sem barma sér yfir hvað hinn og þessi jarðskjálfti hafi fundist vel.
230 manns hafa brugðist við færslunni þegar þetta er skrifað. Einn skrifar við færsluna: „Heyri ég votta fyrir hrepparíg?