Það hljóta allir að finna til með Helgu Andrésdóttur, sem búsett er við Esjurætur. Hún hefur ekki getað notað bílinn sinn síðan fyrir jólin en hann hefur setið fastur í gríðarlega djúpum snjó allar hátíðirnar og situr þar enn.
Fjallað er um málið í Fréttablaðinu.
„Við vorum einhverja fimm daga að þessu en svo fór að hvessa aftur og það var alltof hvasst á einum deginum og svo byrjaði líka að snjóa aftur um nóttina núna á sunnudaginn,“ segir hún um tilraunir sínar við að moka bílinn upp.
En þá fór að snjóa aftur yfir bílinn.
„Það fylltist eiginlega alveg upp í holuna,“ segir Helga sem lætur það ekki á sig fá enda ekkert annað að gera en halda áfram að grafa þegar birtir.
Nánar er fjallað um málið í Fréttablaðinu, en þar má jafnframt sjá fleiri myndir.