Mynd dagsins: „Þarna var sjúkdómurinn búinn að sigra mig“

Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens birti meðfylgjandi mynd á Twitter-síðu sinni í gær en á henni má sjá Bubba á tónleikum fyrir nokkuð mörgum árum.

„Þarna var sjúkdómurinn búin að sigra mig, mylja mig undir sig, ekkert rokk og ról. Engin sól bara hvítt myrkur og sársauki sem að lokum fékk mig til leita mér hjálpar,“ segir Bubbi við myndina sem líklega var tekin á Uxahátíðinni árið 1995.

Bubbi hefur margoft opnað sig um neysluna sem var hluti af lífi hans lengi framan af. Bubbi hefur verið edrú núna í rúman aldarfjórðung og lýsti hann því í viðtali við Fréttablaðið árið 2013 að sú ákvörðun að verða edrú hafi bjargað lífi hans.

„Ég hélt um tíma lista yfir þá vini og kunningja sem höfðu verið mér samferða í neyslunni. Svo hætti ég því. Nöfnunum á listanum tók að fækka ansi hratt. Þegar menn deyja úr neyslu heitir það ýmsum nöfnum – stundum sjálfsvíg, stundum hjartaáfall. Ég er löngu búinn að missa töluna á þeim sem ég hef horft eftir yfir móðuna miklu vegna drykkju.“