Mynd dagsins: „Það verða 4000 smit á mánudaginn. Lásuð það fyrst hér“

Óhætt er að segja að ekki ríki mikil bjartsýni hjá landsmönnum vegna stöðu mála í kórónuveirufaraldrinum. Nú er búið að bólusetja stærstan hluta þjóðarinnar en veiran er ekkert á þeim buxunum að gefast upp – heimsbyggðinni til mikils ama.

Eins og greint var frá í hádeginu greindust 96 smit í gær, eða jafnmörg og á miðvikudag, en smitin á fimmtudag voru 79. Þetta sýnir að faraldurinn er aftur á uppleið eftir góðan árangur í haust.

Nokkur fjöldi smita hefur komið upp á Selfossi undanfarna daga og var FSu lokað af þeim sökum hluta vikunnar. Magnús Guðmundsson, eða Maggi Peran eins og hann kallar sig, birti athyglisverða mynd á Twitter-síðu sinni í morgun en þar má sjá býsna langa röð í sýnatöku á Selfossi.

„Sýnataka á Selfossi þennan morguninn. Það verða 4000 smit á mánudaginn. Lásuð það fyrst hér,“ segir Magnús við myndina.