Mynd dagsins: „Það þarf stundum lítið til að gleðja mann“

Mynd dagsins að þessu sinni birtist á Twitter og tengist tölum sem birtar voru í morgun yfir fjölda kórónu­veiru­til­fella hér á landi síðasta sólar­hringinn. Alls greindust 50 innan­lands­smit og hefur þeim nú farið fækkandi þrjá daga í röð.

Þó að ný­gengi innan­lands­smita sé enn með því hæsta sem gerist hafa þau tíðindi orðið að kúrfan í þessari þriðju bylgju er farin að fletjast ör­lítið út. Tölvunar­fræðingurinn Gunnar Már vakti at­hygli á þessu á Twitter í morgun og birti mynd máli sínu til stuðnings sem sjá má hér neðst.

Við myndina skrifaði hann:

„Það þarf stundum lítið til að gleðja mann. Í dag er það þessi pínu­ponsu­litla sveigja á co­vid línu­ritinu. Fyllir mig bjart­sýni.“

Þór­ólfur Guðna­son sótt­varna­læknir sagði á upp­lýsinga­fundi al­manna­varna í dag að mikil­vægt væri að halda á­fram með að­gerðir til að sveigja far­aldurinn niður. Sagði hann að næstu dagar og vikur muni skera úr um árangur þeirra að­gerða sem þegar hefur verið gripið til. Varaði hann við of mikilli bjart­sýni.

„Ég held að það sé allt of fljótt að fara að hrósa happi þannig að við þurfum að halda á­­fram að standa okkur í þeim að­­gerðum sem sem eru í gangi nú,“ sagði hann.

Þá er rétt að benda á að töluvert færri sýni voru tekin um helgina miðað við virku dagana í síðustu viku. Þó er jákvætt að 66% þeirra sem greindust í gær voru þegar í sóttkví.