Örn Úlfar Sævarsson, almannatengill og fyrrverandi spurningahöfundur og dómari í Gettu betur, birti skemmtilega mynd á Twitter-síðu sinni í dag.
Örn Úlfar virðist hafa verið á leið um Eyjafjarðarsveit því hann birtir mynd af skilti við Jólahúsið í Hrafnagili. Þar ríkir jafnan mikil spenna fyrir jólunum – raunar svo mikil spenna að þar eru dagarnir taldir niður þar til jólin ganga í garð.
Það er skemmst frá því að segja að í dag eru 200 dagar til jóla eins og meðfylgjandi mynd ber með sér. Það eru svo enn færri dagar þar til jóladótið kemur í verslanir og jólabörn landsins freista þess að skella seríum út í glugga.
Áríðandi tilkynning úr Eyjafjarðarsveit pic.twitter.com/Kg9wtr04B3
— Örn Úlfar Sævarsson (@ornulfar) June 7, 2021