Mynd dagsins: Það eina sem hræðir Guð­mund meira en Hells Angels jakkar

Fata­hönnuðurinn Guð­mundur Jörunds­son birtir mynd dagsins þar sem hann grínast létt með Eflingar-jakkana sem hafa vakið mikla at­hygli við samninga­borðið á síðustu dögum.

Efling og Sam­tök at­vinnu­lífsins hafa ekki náð saman og segir Sól­veig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, að verk­fall sé á leiðinni.

Eflingar­fé­lagar mættu alltaf í eins jökkum en jakkarnir eru ó­neitan­lega líkir bomber-jökkunum sem með­limir Hells Angels ganga í.