Stelpurnar okkar í kvennalandsliðinu í fótbolta eru miklar fyrirmyndar og hafa verið lengi. Fá íþróttalið á Íslandi hafa jafn mikil áhrif utan vallar og þær. Stelpurnar gerðu sér lítið fyrir og unnu Hvíta Rússland sex núll á föstudaginn og enda því í hreinum úrslitaleik á þriðjudag um sæti á HM kvenna á næsta ári.
En árangurinn inn á vellinum er svo sannarlega ekki að stíga þeim til höfuðs eins og sjá má á mynd sem fór á samfélagsmiðla í gær er Sif Atladóttir ein að reynslumeiri landsliðsmönnum Íslands gaf sér tíma fyrir myndir með aðdáendum.
Takk @sifatla fyrir að snerta hjarta mitt og Þuríðar Örnu - myndin segir allt💙 pic.twitter.com/qsCMRfKFS4
— Slaugan (@Slaugan1) September 3, 2022