Mynd dagsins: Svona var Ísland í gamla daga: „Þetta er sú Reykjavík sem foreldrar mínir ólust upp í“

Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason birti ansi skemmilega mynd af Reykjavík á Facebook-síðu sinni í gær.

„Sjá hvað Grandinn er lítill og hvað byggðin er þétt.“ skrifar Egill og bætir við: „Austurbæjarskóli nýbyggður og Landspítalinn utan við byggðina og sömuleiðis fátækrahverfið Pólarnir.“

Þá segir Egill að þetta hafi verið sú Reykjavík sem foreldrar hans ólust upp í, og í raun og veru sé ekki það langt síðan Reykjavík var svona.

„Ekki svo langt síðan. Þetta er sú Reykjavík sem foreldrar mínir ólust upp í.“