Mynd dagsins: Svona var Ísland í gamla daga – „Reykvískt andrúmsloft og mikill tíðarandi“

„Ekki man ég hvar ég rakst á þessa mynd, en ég geymi hana í tölvunni. Þarna er reykvískt andrúmsloft og mikill tíðarandi.“ Svona hefst færsla fjölmiðlamannsins Egils Helgasonar sem hann birti á Facebook í gærkvöldi, en þar fjallar hann um sérstaklega áhugaverða mynd af Reykjavík, sem hann telur að sé tekinn á sjötta áratug síðustu aldar.

„Þetta er tekið á mótum Aðalstrætis, Suðurgötu og Túngötu. Herkastalinn er þarna og hefur ekki mikið breyst nema þarna eru gluggarnir fallegri. Suðurgata 4 stendur enn, en þar við hliðina er gamla Dillonshús sem var flutt upp í Árbæ. Sumir vilja flytja það aftur niður í bæ, þá væri það Suðurgata 2. Hinum megin við götuna eru svo gömlu Uppsalir, stórhýsi úr timbri sem var rifið 1969. Ég ímynda mér að þessi mynd sé tekin síðla á sjötta áratugnum.“

Egill rýnir þá enn frekar í myndina og biður lesendur um að taka eftir ákveðnum atriðum, líkt og dreng með mjólkurbrúsa og barnavagn.

„Takið eftir þokunni og atriðum eins og drengnum sem horfir yfir götuna, hann er með mjólkurbrúsa, manninum með pinkilinn sem gengur upp götuna og barnavagninum sem stendur framan við kjallarainnganginn í Uppsali. Hvað var þá í kjallaranum? Var ekki kaffihús þar eitt sinn?“