Mynd dagsins: Svona skiptast stjörnumerki þingmanna – „Sláandi niðurstöður“

Á Facebook má finna fjölmargar áhugaverðar og óáhugaverðar grúppur en ein sú allra óáhugaverðasta ber nafn með rentu: Algjörlega óáhugaverðar stjórnmálaupplýsingar.

Í gær birtist skemmtileg mynd þar sem Baldur Karl Magnússon var búinn að taka saman skiptingu stjörnumerkja þeirra 1.218 einstaklinga sem tekið hafa sæti á Alþingi Íslendinga.

Niðurstöðurnar eru um margt áhugaverðar – en samt ekki – því verulega virðist halla á ákveðin stjörnumerki í skiptingunni. Þannig hafa aðeins 75 vatnsberar tekið sæti á Alþingi en 125 tvíburar sem er fjölmennasti hópurinn. Baldur tekur fram að þessar upplýsingar miðist við dagsetningar samkvæmt hefðbundinni stjörnuspeki en ekki samkvæmt raunverulegri staðsetningu sólar.

Starfandi stjórnmálamenn eru meðal þeirra sem hafa tjáð sig um þessa staðreynd. „Sláandi niðurstöður,“ segir til dæmis Andrés Ingi Jónsson, þingmaður Pírata.