Mynd dagsins: Svona hefur þú aldrei séð Ísland

Mynd dagsins að þessu sinni er af snæviþöktu Íslandi sem tekin var á nýársdag. Kalt hefur verið á landinu undanfarnar vikur og þá hefur snjóað býsna mikið víðast hvar.

Myndin hér að ofan er mynd dagsins hjá DG DEFIS, stjórnarskrifstofu ESB um varnarmál og geimvísindi. Hún birtist á Facebook-síðu Evrópusambandsins á Íslandi í dag og var tekin af Sentinel3, gervihnetti Evrópsku geimvísindastofnunarinnar og Kópernikus-áætlunarinnar.

Eins og sést glögglega á myndinni voru varla ský yfir landinu þegar myndin var tekin og landið gjörsamlega þakið snjó – einstök mynd, vægast sagt.